Uppgjör á yfirtökutilboði Exista í hluti í Skiptum fór fram í gær, 2. Júní 2008, og eiga Exista og dótturfélög þess nú alls 99,22% af heildarhlutafé og fara með samsvarandi atkvæðisrétt í félaginu.

Í ljósi þess hafa Exista og stjórn Skipta samþykkt að aðrir hluthafar í Skiptum skuli sæta innlausn Exista á hlutum sínum sem er heimilt samkvæmt lögum um verðbréfaviðskipti.

Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Innlausnarverðið er 6,64 kr. fyrir hvern hlut í Skiptum. Greitt verður fyrir hlutina með hlutum í Exista þar sem hver hlutur í Exista er verðlagður á 10,1 krónu. Er um að ræða sama verð og endurgjald og Exista bauð hluthöfum Skipta í yfirtökutilboði sem lauk 26. maí 2008. Greiðslan verður innt af hendi 2. Júlí 2008, segir í tilkynningunni.

Hluthöfum Skipta, sem innlausnin tekur til, verður send tilkynning um innlausnina ásamt  framsalseyðublaði, en einnig verður hægt að nálgast tilkynninguna og framsalseyðublaðið hjá Kaupþingi banka hf.