Exista keypti eigin bréf fyrir um 28,9 milljónir króna á föstudaginn, samkvæmt upplýsingum frá Kauphöllinni.

Um er að ræða 1.162.791 hluti, keypta á genginu 24. Markaðsgengi félagsins þegar þetta er skrifað er 33,45, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis.

Ástæða viðskiptanna er sögð uppgjör á starfssamningi.