Exista hefur keypt í Bakkavör Group fyrir um 940 milljónir króna en Exista er kjölfestufjárfestir í fyrirtækinu, að því er fram kemur í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Um er að ræða 14.000.000 hluti, keypta á genginu 67,1 og á eftir viðskiptin 844.503.521 hluti.

Fjárfestingarfélagið á 36,63% hlut í Bakkavör Group, samkvæmt upplýsingum frá hluthafaskrá.

Vátryggingafélag Íslands á 32.625.824 hluti í Bakkavör Group og Líftryggingafélag Íslands á 3.094.176 hluti í Bakkavör Group. Exista á 100% hlutafjár í Vátryggingafélagi Íslands og 100% í Líftryggingafélag Íslands. Um er að ræða 35.720.000 hluti í Bakkavör Group.

Hlutir í eigu fruminnherja og aðila sem eru fjárhagslega tengdir þeim, annarra en ofantaldra félaga, voru samtals 4.294.105, þar af 2.000.000 vegna framvirkra samninga.