Exista keypti í gær í Bakkavör Group fyrir um 593 milljónir króna, samkvæmt tilkynningu til Kauphallarinnar. Um er að ræða 11.640.000 hluti á genginu 50,984.

Síðasta föstudag tilkynnti Exista um kaup á 4,5 milljarða króna hlut í Bakkavör Group. Um þau kaup sagði Erlendur Hjaltason forstjóri Exista:

"Þessi kaup endurspegla trú Exista á Bakkavör og framtíðarmöguleikum félagsins. Hlutfallsleg eign Exista í Bakkavör hefur minnkað í tengslum við aukningu hlutafjár á undanförnum misserum og teljum við nú vera rétta tímann til þess að auka hlut okkar í félaginu á ný."