Exista hefur selt eigin bréf fyrir um 682 þúsund krónur á genginu 21,5, samkvæmt upplýsingum frá Kauphöllinni. Um er að ræða 31.739 hluti. Exista á 331.238 hluti af eigin bréfum eftir viðskiptin.

Þetta eru skipti á bréfum vegna kaupa Exista á Vátryggingafélagi Íslands sem nemur 0,0018% af heildarhlutafé Vátryggingafélagsins. Eftir kaupin á Exista 99,9986% í Vátryggingafélagi Íslands hf.