Exista seldi í dag 8,69% hlut félagsins í Storebrand ASA til Gjensidige Forsikring BA.

Um að ræða rúmlega 39 milljón hluti sem seldir voru á genginu 20 norskar krónur á hvern hlut.

Í tilkynningu frá Exista kemur fram að eftir viðskiptin á hvorki Exista né dótturfélög þess hluti í Storebrand.

Hluti viðskiptanna, eða 18.209.877 hlutir sem nema 4,05% af heildarhlutafé Storebrand, er háður samþykki fjármálaeftirlitsins í Noregi