Exista gekk í gærkvöldi frá sölu á öllum hlut sínum í Verði Íslandstryggingu hf., eða 56,65% hlut, segir í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Samkvæmt heimildum Viðskiptablaðsins keypti Ingimundur Helgason, annar stærsti hluthafinn í Verði með 8% eignarhlut, hlutinn af Exista.

Salan mun hafa óveruleg áhrif á rekstur og efnahag félagsins en samkvæmt samningi við kaupanda er söluverðið trúnaðarmál. Salan er gerð með fyrirvara um samþykki Fjármálaeftirlitsins.