Hlutafé Exista verður skráð á Aðallista Kauphallarinnar á morgun, 15. september, en fyrirtækið er á meðal öflugustu fyrirtækja landsins og nema heildareignir þess yfir 300 milljörðum króna og er þetta stærsta nýskráning félags til þessa, segir í tilkynningu til Kauphallar Íslands..
Félagið starfar á sviði fjármálaþjónustu, einkum trygginga og eignaleigu, meðal annars undir merkjum VÍS og Lýsingar. Exista er jafnframt kjölfestufjárfestir í nokkrum af stærstu fyrirtækjum landsins, þar á meðal Kaupþingi banka, Bakkavör Group og Símanum. Markmið Exista er að nýta fjárhagslegan styrk sinn til frekari uppbyggingar hér á landi og erlendis, segir í tilkynningunni
Skráning Exista er stærsta nýskráning félags í Kauphöllina til þessa en markaðsvirði félagsins eru rösklega 230 milljarðar króna. Heildarfjöldi hluta í Exista eru alls 10.838.746.119. Á undanförnum vikum hafa farið fram útboð á hlutafé í Exista til fagfjárfesta, starfsmanna og almennings. Seldir voru 430 milljón hlutir í eigu Kaupþings banka, alls tæplega 4% af heildarhlutafé í Exista, á genginu 21,5 krónur á hlut.
Hinn 30. júní síðastliðinn námu heildareignir Exista 311 milljörðum króna og eigið fé nam 143 milljörðum króna.