Exista birtir uppgjör sitt fyrir fjórða ársfjórðung og árið í heild á morgun. Greiningardeild Landsbankans spáir því að tekjur nemi tæplega 15,7 milljörðum króna á fjórða fjórðungi og hagnaður eftir skatta verði um 6 milljarðar króna.

Greiningardeild Landsbankans hefur ekki birt verðmat á Exista en í afkomuspá sinni  fyrir félagið sem birt var 15. janúar síðastliðinn mæltu þeir með með markaðsvogun hlutabréfa Exista í vel dreifðu eignasafni