Exista hefur borist stefna frá HOLT Funding 2008-1 Limited hf. þar sem gerðar eru þær dómkröfur að Exista greiði félaginu samtals tæplega 19 milljarða króna vegna lánssamnings sem upphaflega var gerður við Íslandsbanka hf. (síðar Glitnir banki hf.).

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Exista til Kauphallarinnar en þar kemur jafnframt fram að Exista mun taka til varna í málinu enda segist félagi hafa gert upp kröfu HOLT Funding með skuldajöfnuði.