Tap Existu á 2. fjórðungi þessa árs eftir skatta nam 38,4 milljónum evra, um 4,2 milljörðum íslenskra króna. Heildartekjur félagsins námu 89,6 milljónum evra, þ.e. 9,8 milljörðum króna.

Á fyrstu sex mánuðum ársins tapaði félagið um 9 milljörðum íslenskra króna. Hagnaður af fjármálaþjónustu eftir skatta nam 7,3 milljörðum en tap af fjárfestingum eftir skatta nam 16,3 milljörðum króna.

30. júní námu eignir félagsins 868 milljörðum króna og höfðu lækkað um 13,6% frá áramótum. Eigið fé var 286 milljarðar króna og eiginfjárhlutfall 37%.

„Í ljósi ríkjandi markaðsaðstæðna erum við sátt við niðurstöðu ársfjórðungsins. Á umrótartímum á fjármálamörkuðum höfum við lagt áherslu á að standa vörð um traustar undirstöður félagsins. Rekstur fyrirtækja okkar gengur vel og við höfum mikla trú á þeim til framtíðar, þótt verðmyndun á markaði sé veik um þessar mundir. Sem fyrr högum við starfsemi Exista, þar með talið kostnaðaraðhaldi og áhættustýringu, með það að markmiði að treysta stoðir félagsins. Með okkar öflugu fyrirtæki og vaxandi ítök í fjármálaþjónustu á Norðurlöndum erum við í góðri stöðu til þess að mæta krefjandi markaðsaðstæðum til hagsbóta fyrir félagið í framtíðinni,“ segir Lýður Guðmundsson, stjórnarformaður Exista, í tilkynningu til Kauphallarinnar.