Tvær nýjar matvöruverslanir undir vörumerkinu Extra hafa verið opnaðar í Keflavík og á Akureyri og koma þær í stað Iceland verslana sem voru þar fyrir. Frá þessu er greint í fréttatilkynningu.

Verslanir Extra eru opnar viðskiptavinum allan sólarhringinn og er lögð áhersla á fjölbreytt vöruúrval, hagstætt verð og hraða og góða þjónustu.

„Það kemur sér síðan extra vel fyrir viðskiptavini okkar að við bjóðum upp á 20 vinsælar Costco vörur á Costco verði og má þar til dæmis nefna eldhúspappír, klósettrúllur, þvottaefni, gosdrykki og ávaxtasafa.“ segir Sigurður Karlsson forstjóri Basko.

Til stendur að opna fleiri Extra verslanir á næstu misserum og er stefnan sett á að opna þriðju verslunina í ágúst á þessu ári. Sú verður staðsett á Barónstíg 4 í því plássi sem verslun 10-11 var áður.

„Staðsetningin er alveg kjörin fyrir næstu opnun og verður skemmtilegt að fá aftur líf í húsið á Barónstígnum og geta boðið íbúum á svæðinu upp á nauðsynlegar og góðar vörur fyrir heimilið á extra hagstæðu verði. Áherslan verður sú sama og í þeim verslunum sem nú hafa verið opnaðar, að undanskildum opnunartímanum sem verður styttri, eða frá klukkan 08:00 til 24:00 alla daga ársins.“ segir Sigurður.