Eydís Þ. Indriðadóttir hefur verið ráðinn sveitarstjóri Flóahrepps frá og með 1. ágúst n.k. Hún hefur starfað undanfarin ár á sviði sveitarstjórnarmála sem oddviti Ásahrepps. Þetta kemur fram í frétt á vef Flóahrepps .

Eins og VB.is greindi frá var starfið ansi eftirsóknavert en alls sóttu 38 um starfið, en í bæjarfélaginu búa tæplega 600 manns.

Eydís hefur áður setið í skipulagsnefndum, skólanefndum, verið formaður Mennta- og menningarnefndar Suðurlands og átt sæti í stjórn Samtaka Orkusveitarfélaga á Íslandi. Hún er menntaður kennari og er með M.Sc. gráðu í mennta- og menningarstjórnun frá Háskólanum á Bifröst.