Eygló Harðadóttir, þingmaður Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi, ætlar að gefa kost á sér í 1. sæti á lista flokksins í Suðvesturkjördæmi í næstu þingkosningum. Siv Friðleifsdóttir var í þessu sæti á lista flokksins. Siv greindi frá því í morgun að hún ætli ekki að gefa kost á sér í næstu kosningum til Alþingis.

Hún segir í tilkynningu sem hún sendi frá sér Suðvesturkjördæmi og áður Reykjaneskjördæmi hafa átt öfluga fulltrúa úr framvarðasveit Framsóknarflokksins um langt skeið. Mikilvægt sé að svo verði áfram og að forysta framsóknarmanna verði leiðandi á framboðslistum flokksins á höfuðborgarsvæðinu í næstu Alþingiskosningum.