Eygló Þóra Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, leiðir lista Framsóknar í Suðvesturkjördæmi. Þetta kemur fram á vefsíðu flokksins .

Willum Þór Þórsson, alþingismaður skipar annað sæti listans. Þriðja sætið skipar hinn 19 ára Páll Marís Pálsson, sem er nemi frá Kópavogi. María Júlía Rúnarsdóttir lögmaður frá Garðabæ skipar fjórða sæti listans og Linda Hrönn Þórisdóttir leikskólastjóri frá Hafnarfirði það þriðja.

Sérstaklega er tekið fram á vef Framsóknar að listinn sé: „vel fléttaður fólki á öllum aldri, úr fjölbreyttum starfsstéttum og er listinn skipaður fleiri konum en körlum.“