© Aðsend mynd (AÐSEND)

Hugbúnaðarfyrirtækið ReonTech hefur gefið út nýja útgáfu af Eyja-appinu svokallaða, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu. Appið var upphaflega gefið út fyrir Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum árið 2012 og naut mikilla vinsældaþ

Með appinu, sem gert er bæði fyrir Android og iOS, er hægt að skoða dagskrá hátíðarinnar, raða upp sinni eigin dagskrá, sjá hverjir eru að spila, finna texta fyrir þjóðhátíðarlagið og skoða kort af svæðinu.

Í tilkynningunni segir að appið hafi fengið talsverða yfirhalningu og stefnt verði að því að bæta það áfram á komandi þjóðhátíðum.