Eyjamenn ehf. hafa framlengt tilboðsfrest sinn og gefa viðkomandi hluthöfum færi á að endurmeta samþykki við tilboði félagsins að því er kemur fram í tilkynningu til kauphallarinnar. Eyjamenn ehf. gerðu hluthöfum í Vinnslustöðinni hf. opinbert yfirtökutilboð í félagið 9. maí sl. þar sem boðnar voru 4,60 kr. á hvern hlut. Síðan hefur Stilla ehf. boðið 8,5 krónur á hlut.


Í fréttakerfi OMX/Kauphallar Íslands hf. 31. maí sl. var tilkynnt um að Stilla ehf., félag í eigu Guðmundar Kristjánssonar og Hjálmars Kristjánssonar, hefði ákveðið að leggja fram samkeppnistilboð í allt hlutafé Vinnslustöðvarinnar hf. á grundvelli 45. gr. laga nr. 33/2003 um verðbréfaviðskipti. Boðnar yrðu 8,50 kr. á hvern hlut.

Verði tilboð Stillu ehf. gert opinbert á gildistíma yfirtökutilboðs Eyjamanna ehf., þ.e. fyrir kl. 16:00 mánudaginn 11. júní nk., verður gildistími yfirtökutilboðs Eyjamanna ehf. framlengdur til samræmis við gildistíma samkeppnistilboðsins, sbr. 2. mgr. 45. gr. laga nr. 33/2003.

Eyjamenn ehf. gerðu hluthöfum í Vinnslustöðinni hf. opinbert yfirtökutilboð í félagið 9. maí sl., eins og lög mæla fyrir um, þar sem boðnar voru 4,60 kr. á hvern hlut. Í tilefni af framangreindri tilkynningu um samkeppnistilboð Stillu
ehf. hafa Eyjamenn ehf. ákveðið að gefa þeim hluthöfum í Vinnslustöðinni hf., sem samþykkt hafa tilboð Eyjamanna ehf. með formlegum hætti, kost á að endurmeta samþykki sitt við tilboðinu. Bréf þar að lútandi var póstlagt til viðkomandi hluthafa núna um helgina.

Eyjamenn ehf. vilja jafnframt vekja athygli hluthafa Vinnslustöðvarinnar hf. á því að eftirfarandi kostir standa þeim meðal annars til boða:

1. Að selja Stillu ehf. hlutabréfin fyrir 8,5 kr. á hlut.
2. Að samþykkja kauptilboð Eyjamanna ehf. upp á 4,6 kr.
3. Að eiga hlutabréfin sín í Vinnslustöðinni hf. áfram, enda er hluthöfum ekki
skylt að selja hlutabréf sín í félaginu.

Eyjamenn ehf. hafa þegar ákveðið að taka ekki væntanlegu tilboði frá Stillu ehf.