Fjögur félög hafa boðið í uppsteypu á nýju þjóðarsjúkrahúsi sem Nýr Landspítali ohf. bauð út fyrr á þessu ári. Kostnaðaráætlun verksins er 10,5 milljarðar króna (án virðisaukaskatts) og er hagstæðasta tilboðið frá Eykt tæplega 83% af þeirri upphæð. Frá þessu er greint í fréttatilkynningu.

Uppsteypa hússins mun líklegast hefjast á þessu ári en fimm félög höfðu verið metin hæf í forvali á fyrr á árinu. Ríkiskaup sjá um uppboðið.

Tilboð bárust frá eftirtöldum fyrirtækjum:

Eykt 8.687.513.317 kr. (82,67%)

Íslenskir aðalverktakar 12.391.331.160 kr. (117,92%)

Ístak 10.372.866.483 kr. (98,71%)

Rizzani De Eccher S.P.A. og Þingvangur. 8.728.083.840 kr. (83,06%)

Auk þessara fjögurra félaga hafði ÞG verktakar verið metin hæf. Tvö opin útboð eru nú í auglýsingu hjá Ríkiskaupum, bæði vegna vinnubúðasvæðisins. Annað snýst um jarðvinnu og veitnagerð á svæðinu og hitt um vinnubúðirnar sjálfar.

„Þetta er stærsti áfanginn hjá okkur í Hringbrautarverkefninu til þessa. Jarðvegsframkvæmdir við grunn hússins hafa gengið vel og nú hefst nýr kafli sem er uppsteypa á þessu stóra húsi sem verður um 70 þúsund fermetrar. Áætlanir okkar eru þær að uppsteypan geti hafist þegar í nóvember þegar búið verður að ganga frá samningum um framkvæmdina.

Framkvæmdatími verksins er um þrjú ár. Þessu verki hefur fylgt jákvæður hugur og við vonumst eftir þvi að þessi stóra framkvæmd muni ganga vel og stefnt er að að nýr spítali verði tekinn í notkun 2026,“ segir Gunnar Svavarsson, framkvæmdastjóri NLSH ohf.