Íslandsbanki hyggst frá og með deginum í dag auka þjónustu við eldri borgara sem ekki hafa tök á að nýta sér stafrænar lausnir. Þeim viðskiptavinum er boðið að hringja í símanúmerið 440-3737 fyrir alla helstu bankaþjónustu. Í tilkynningu frá bankanum þar sem þessi þjónusta er kynnt, segir að með þessu móti sé hægt að bjóða öllum viðskiptavinum áfram góða þjónustu þó útibú bankans séu lokuð.

„Ljóst er að álag eykst mikið á dreifileiðir bankans um mánaðamót en bent er á netspjall bankans sem opið er frá kl.9-18 og í Íslandsbankaappinu er hægt að framkvæma allar helstu aðgerðir,“ segir jafnframt í tilkynningu bankans, auk þess sem bent er á að viðskiptavinir bankans geti fundið nánari upplýsingar og góð ráð á islandsbanki.is/covid .

„Um mánaðamót þurfa flestir að sinna sínum bankaviðskipum en allar helstu aðgerðir er hægt að framkvæma í Íslandsbankaappinu eða netbanka. Við gerum okkur þó grein fyrir því að það eru ekki allir sem hafa tök á því og nú kynnum við enn betri þjónustu fyrir eldri borgara sem þurfa aðstoð. Útibúum bankans hefur verið lokað í ljósi aðstæðna nema ef erindin eru mjög brýn en við vonumst til að með þessari þjónustu getum við aðstoðað okkar viðskipta vini eins vel og hægt er," er haft eftir Sigríði Hrefnu Hrafnkelsdóttur, framkvæmdastjóra einstaklingssviðs hjá Íslandsbanka, í tilkynningunni.