Eyrir fjárfestingafélag hefur flaggað kaupum í Össuri hf. og er nú komið með 21,41% hlut í félaginu en var fyrir með 15,63% hlut.

Össur hækkaði um 7,55% í viðskiptum dagsins og má án efa rekja þá hækkun til kaupa Eyris sem keypti 22.272.999 hluti.

Heildarfjárfestingar Eyris fjárfestingafélags eru um 300 milljónir Evra, og eru þær stærstu eignarhlutir í Marel og Össuri. Fjárfestingar eru fjármagnaðar til jafns með eigin fé og langtímalánum að því er segir á heimasíðu félagsins.