Eyrir Invest greiðir í dag skuldabréf í flokkinum EYRI 07 2, að því er kemur fram í tilkynningu til Kauphallar. Flokkurinn er á gjalddaga 20. apríl næstkomandi . Um er að ræða óskráðan flokk skuldabréfa sem gefin eru út í kerfi Verðbréfaskráningar Íslands hf.

Samhliða gefur Eyrir út nýjan flokk skuldabréfa, EYRI 11 1. Markmiðið er að gefa út skuldabréf í flokknum fyrir allt að 4 milljarða króna, en í dag eru gefin út skuldabréfa að fjárhæð 1.012 milljónir króna,“ segir í tilkynningu.

„Gjalddagi hinna nýju skuldabréfa er 15. maí 2014.  Vaxtagjalddagar eru  á 12 mánaða fresti og er fyrsti vaxtagjalddaginn 15. maí 2012. Hin nýju skuldabréf skulu bera REIBOR vexti að viðbættu 500 punkta álagi. Sérstök skilyrði samkvæmt hinum nýju skuldabréfum eru 25% eiginfjárhlutfall og skuldbinding um að greiða ekki arð sem nemur meira en 50% af hagnaði hvers árs. Eyrir Invest mun sækja um skráningu á hinum nýju skuldabréfum í Kauphöll Íslands fyrir árslok 2011 til viðbótar við þann flokk skuldabréfa félagsins sem þegar er skráður, EYRI 05 1. Hin nýju skuldabréf eru útgefin rafrænt í kerfi Verðbréfaskráningar Íslands hf,“ segir ennfremur.

H.F. Verðbréf hf. höfðu umsjón með útgáfu og sölu hinna nýju skuldabréfa.

„Eyrir Invest er alþjóðlegt fjárfestingafélag sem leggur áherslu á iðnfyrirtæki sem eiga möguleika á skara framúr á alþjóða vettvangi.  Eyrir Invest fjármagnar fjárfestingastarfsemi sína með hlutafé og langtímalánum. Heildareignir eru EUR 426 milljónir í árslok 2010 og eiginfjárhlutfallið 44%.“ Helstu eignir Eyris eru í hollenska félaginu Stork, Össuri og kjölfestuhlutur í Marel.