Fjárfestingarfélagið Eyrir Invest hefur greitt upp að fullu skuldabréfaflokkinn EYRI 11 1. Óskað hefur verið eftir afskráningu skuldabréfaflokksins úr Kauphöll. Þetta er í samræmi við áform félagsins sem greindi frá því í síðasta mánuði að til stæði að greiða flokkinn upp um mánaðamótin, þ.e. höfuðstól og áfallna vexti. Uppgreiðsla fer fram í samræmi við heimild í skilmálum flokksins.

Í tilkynningu frá Eyri á sínum tíma segir að með uppgreiðslunni nú hafi Eyrir Invest greitt upp allar aðrar skammtímaskuldbindingar og sé það nú að fullu langtímafjármagnað. Hluti af uppgreiðslum annarra skulda var háð heimild frá Seðlabanka Íslands til að greiða upp erlendar skammtímaskuldbindingar fyrir lokagjalddaga. Sú heimild hefur nú fengist. Í umfjöllun VB.is um málið í ágúst sagði að lokagjalddagi lásins sé í desember á þessu ári. Óskar hafði verið eftir undanþágu frá gjaldeyrishöftum vegna greiðslunnar í maí en svar ekki borist í ágúst.