Eyrir Invest keypti í Marel fyrir um 48 milljónir í gær, samkvæmt upplýsingum frá Kauphöllinni. Um er að ræða 611.925 hluti á genginu 78,9.

Þann 15. nóvember keypti fjárfestingarfélagið í Marel fyrir um 201 milljón króna.

Eyrir Invest er stærsti hluthafi Marels, með um 28,96% eignarhlut, samkvæmt hluthafaskrá.