Eyrir Invest hefur keypt í Marel [ MARL ] fyrir 449 milljónir króna á genginu 90,5, samkvæmt tilkynningu til Kauphallarinnar.
Eyrir Invest er kjölfestufjárfestir Marel. Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Eyrir Invest, er stjórnarformaður í Marel Food Systems. Margrét Jónsdóttir, fjármálastjóri Eyrir Invest er stjórnarmaður í Marel Food Systems.
Það sem af er ári hefur Marel lækkað um 9,2%.