Eyrir Invest hefur aukið hlut sinn upp í 30,77% í Marel en félagið var fyrir stærsti hluthafinn í félaginu. Á Eyrir nú 184.938.133 hluti í Marel.

Eyrir Invest ehf er fruminnherji í Marel hf. Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Eyrir Invest ehf, er stjórnarformaður í Marel og Margrét Jónsdóttir, fjármálastjóri í Eyrir Invest ehf er stjórnarmaður í Marel hf.

Þess má geta að í gær flaggaði félagið aukningu í Össuri en Eyrir Invest er kjölfestufjárfestir í báðum félögum.