Eyrir, fjárfestingarfélag feðganna Árna Odds og Þórðar Magússonar, hefur selt öll hlutabréf sín í FL Group. Alls er um liðlega 75 milljón hluti að ræða eða 3% hlutabréfa.

Kaupendur eru tveir af stærstu hluthöfum FL Group. Oddaflug eignarhaldsfélag Hannesar Smárasonar, stjórnarformanns FL Group, er komið með 30,54% hlutafjár og Saxbygg, fjárfestingarfélag Saxhóls og Bygg er komið í 26,5%. Samtals eiga þessir tveir stærstu hluthafar því liðlega 57% hlutafjár. Þá hefur Pálmi Haraldsson, stjórnarmaður í FL Group bætt lítillega við sinn hlut í gegnum eignarhaldsfélag sitt, Mannvirki ehf.

Árni Oddur Þórðarson á sæti í stjórn FL Group.