Fulltrúar fjarskiptasjóðs, nokkrra sveitarfélaga og innanríkisráðherra skrifuðu í gær undir samninga um styrki fjarskiptasjóðs fyrir uppbyggingu ljósleiðara í sveitarfélögunum. Alls fá 14 sveitarfélög styrki til að tengja um 900 staði með ljósleiðara og um 200 staði með ídráttarröri fyrir ljósleiðara sem kosta mun alls 450 milljónir króna. Meðal kostnaður ríkisins á hvern stað eru rúmar 400 þúsund krónur, að því er segir í tilkynningu frá ráðuneytinu.

Ólöf Nordal innanríkisráðherra sagði við þetta tækifæri að uppbygging fjarskiptakerfa utan markaðssvæða og þá einkum ljósleiðara í dreifbýli væri eitt af markmiðum stjórnvalda. Undirbúningur þessa verkefnis hefði staðið yfir í nokkur misseri og nú hæfist átakið af krafti.

Sveitarfélög sem fá styrk eru Borgarbyggð, Húnaþing vestra, Súðavíkurhreppur, Eyja- og Miklaholtshreppur, Sveitarfélagið Skagafjörður, Blönduósbær, Húnavatnshreppur, Norðurþing, Fljótsdalshérað, Svalbarðshreppur, Þingeyjarsveit, Rangárþing eystra, Rangárþing ytra og Kjósarhreppur.

Styrkupphæðir til hvers og eins sveitarfélags eru misháar, allt frá rúmum fjórum milljónum króna og upp í yfir 100 milljónir. Gert er ráð fyrir að vinna við tengingarnar fari fljótlega af stað enda hafa sveitarfélögin þegar undirbúið verkið að nokkru leyti.