Það fékkst 5,6 sent á evruna fyrir skuldatryggingar Kaupþings banka á uppboði á þriðjudaginn, að því er segir í frétt Dow Jones. Þetta var fyrsti áfangi í útboðinu og er því ekki endanlegt verð.

Það táknar að þeir sem hafa selt skuldatryggingar á bréf Kaupþings þurfa að greiða þeim, sem keypt hafa slíkar tryggingar, mismuninn eða 94,4% af nafnverði bréfanna.

Viðskiptablaðið hefur áður greint frá því að hátt í 160 bankar og fjárfestar hafa gefið sig fram vegna uppgjörs á skuldatryggingum íslensku viðskiptabankanna.