Að undangengnu lögbundnu samráði við Bjarna Benediktsson fjármálaráðherra hefur Seðlabankinn veitt slitastjórn gamla Landsbankans (LBI hf.) undanþágu frá lögum um gjaldeyrismál — gjaldeyrishöftum. Þar með getur bankinn greitt forgangskröfuhöfum 400 milljarða króna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Seðlabankanum.

Tildrög undanþágunnar eru að slitastjórnin og Landsbankinn hafa náð samkomulagi um breytingar á skilmálum skuldabréfa sem gefin voru út af Landsbankanum á grundvelli ákvörðunar Fjármálaeftirlitsins í október 2008. Ákvörðunin kvað á um uppskiptingu eigna og skuldbindinga í kjölfar falls Landsbanka Íslands.

„Samkomulagið felur í sér lengingu á eftirstöðvatíma skuldabréfanna og þátttöku LBI hf. í endurfjármögnunaráhættu Landsbankans hf. eftir 2018," segir í tilkynningunni. „Það felur í sér vissar breytingar á samkomulagi þessara aðila frá 8. maí sl. en að öðru leyti mun það taka gildi samhliða undanþágu Seðlabanka Íslands. Skilyrði þess af hálfu LBI hf. að samkomulag LBI og Landsbankans um skilmálabreytingar taki gildi var að ofangreind undanþága og vilyrði yrði veitt. Þessi gildisskilyrði eru mun takmarkaðri en LBI hf. óskaði eftir í júní síðastliðnum í framhaldi af samkomulaginu frá 8. maí sl. Þá var beðið um mjög víðtækar undanþágur sem tóku til allra eigna búsins."

Seðlabankinn hefur einnig veitt LBI hf. vilyrði um undanþágur vegna frekari hlutagreiðslna til forgangskröfuhafa að því gefnu að undanþágur verði þá ekki taldar raska stöðugleika í gengis- og peningamálum.

„Niðurstaða Seðlabanka Íslands varðandi undanþáguna og tengt vilyrði byggist á tvenns konar greiningu. Annars vegar á áhrifum þess að samningur Landsbankans hf. og LBI hf. um breytingu skilmála þessara skuldabréfa næði fram að ganga. Hins vegar á áhrifum undanþágunnar sem slíkrar og tengdrar útgreiðslu úr búi LBI á greiðslujöfnuð og fjármálastöðugleika en einnig var litið til þess fordæmis sem hún kynni að skapa.

Að mati Seðlabankans mun skilmálabreytingin hafa jákvæð áhrif á efnahagslegan og fjármálalegan stöðugleika þjóðarbúsins og auðvelda losun fjármagnshafta. Hætta á óstöðugleika í greiðslujöfnuði þjóðarbúsins næstu árin minnkar því, enda verður greiðslubyrði af gjaldeyrisskuldum innlendra aðila töluvert minni en áður var áætlað eða sem nemur 124 ma.kr. fram til ársins 2018. Betri fjármögnun Landsbankans hf. ætti að liðka fyrir fjármögnun Landsbankans á erlendum lánsfjármörkuðum á viðráðanlegum kjörum og auðvelda honum að mæta þörfum atvinnulífsins fyrir lánsfjármagn í erlendri mynt."