Forsvarsmenn kanadíska flugfélagsins Air Kanada sem hefur flug hingað til Íslands frá bæði Montreal og Toronto, ætluðu sér að flúga frá Íslandi árla morguns en þeim varð ekki erindi sem erfiði. Þó hefur flugfélagið ekki breytt flugáætluninni á heimasíðu sinni. Þetta kemur fram í frétt Túrista.is.

Flugfélagið verður í samkeppni við Icelandair og Wow air. Í tilkynningu frá félaginu kom fram að vélar félagsins myndu fljúga frá Íslandi klukkan hálf níu að morgni alla virka daga vikunnar að fengnu samþykki yfirvalda og hófst sala á farmiðum á sama tíma.

Samkvæmt upplýsingum frá Isavia, fékk kanadíska flugfélagið ekki umbeðna brottfaratíma. Úthlutun brottfaratímanna er á borði sjálfstæðs samræmingarstjóra en ekki Isavia eins og reglur EES gera ráð fyrir.

Þetta hafði legið fyrir, en þó hafa forsvarsmenn Air Canada ekki breytt áætlun félagsins á heimasíðu sinni og sá sem bókar far með félaginu í dag til Kanada gengur út frá því að brottför verði frá Keflavíkurflugvelli klukkan 8:30. Túristi hefur ekki fengið svör frá upplýsingafulltrúa Air Canada. „Í svari félagsins segir að upphaflega flugáætlunin hafi gert ráð fyrir lendingu á Keflavíkurflugvelli klukkan tíu mínútur í sjö að morgni og brottför klukkan hálf níu. Flugélagið hafi verið á biðlista eftir þessum tímum en nú þegar ljóst er að tímarnir verði ekki lausir muni uppfærð flugáætlun birtast á heimasíðu Air Canada í vikunni. Samkvæmt henni munu þotur kanadíska flugfélagsins lenda á Keflavíkurflugvelli klukkan níu að morgni og taka á loft klukkutíma síðar,“ segir í frétt Túrista.is.