Íslandspóstur og Ölgerðin fengu í vikunni afhenta fyrstu rafsendibílana sem fyrirtækin hafa fest kaup á.

Bílarnir eru af gerðinni Renault Kangoo og eru þeir jafnframt fyrstu sendibílarnir á götum landsins sem eru alfarið rafknúnir, samkvæmt tilkynningu frá BL ehf.

Renault Kangoo EV rafmagnbílarnir eru 60 hestöfl og miðað við íslenskrar veðuraðstæður draga þeir allt að 120 km á rafhleðslunni. Burðargeta Kangoo EV er 610 kg, örlítið meiri en dísilbíla sömu gerðar auk þess sem staðalbúnaður er meiri.