Skammtímaávöxtun fjármagns í krónum er meiri í mánuði hverjum heldur en búast má við að fáist næsta árið í sumum helstu myntum að því er kemur fram í Morgunkorni Glitnis.

Þeir benda á að það þurfi því mikla svartsýni á þróun krónu til þess að kjósa að halda fjármunum sínum í öðrum myntum þessa dagana.

Í Morgunkorninu er bent á að þeir sem kjósa að geyma fjármuni á innlendum gjaldeyrisreikningum fá afar lága ávöxtun fyrir vikið á meðan skammtímareikningar í krónum og innlend ríkistryggð skammtímaskuldabréf gefa allt að 1,4% ávöxtun á mánuði í aðra hönd.

Í Morgunkorninu er bent á að þróun undanfarinna vikna hefur orðið til að auka verulega vaxtamun milli Íslands og helstu myntsvæða. Af helstu myntsvæðum eru stýrivextir nú hæstir á evrusvæði, 2,5%, stýrivextir í Bretlandi eru nú 2% en í Sviss, Japan og Bandaríkjunum eru stýrivextir nú innan við 1%. Er búist við frekari lækkun vaxta á evrusvæði og í Bretlandi.

„Hér á landi eru hins vegar stýrivextir einir þeir hæstu á byggðu bóli eftir hækkun þeirra í 18%. Má segja að það skjóti býsna skökku við að það land meðal þróaðra ríkja sem líklega mun ganga í gegnum krappastan samdrátt á komandi misserum búi við langhæstu stýrivextina. Hins vegar má gera ráð fyrir að þessi gífurlegi vaxtamunur slái á löngun fjárfesta til þess að færa eignir sínar úr krónum þegar gjaldeyrishöftum verður aflétt," segir í Morgunkorninu.