Stutt er talið í að samkomulagi verði landað á milli stjórnenda svissneska risabankans UBS og fjármálayfirvalda í Bandaríkjunum og Bretlandi í tengslum við brask miðlara í bankanum með millibankavexti. Ef af verður mun bankinn greiða eftirlitsaðilum tæplega 300 milljónir punda í sektir vegna málsins. Þetta jafngilda 60 milljarða íslenskra króna.
Ekki er talið útilokað að sektin verði hærri en Barclays-banki í Bretlandi verði að greiða vegna málsins. Sekt hans nam 290 milljón pundum, um 60 milljörðum króna. Í kjölfarið tóku bæði bankastjóri og stjórnarformaður Barclays poka sína.
Bloomberg-fréttaveitan segir að í tengslum við rannsókn á málinu hafi 25 starfsmenn bankans yfirgefið hann.
Braskið með millibankavexti er talið teygja anga sína víða og að á milli 10 til 20 bankar tengist því.