Félag atvinnurekenda (FA) hefur sent atvinnuvegaráðuneytinu bréf og farið fram á að útboðsgjald á tollkvóta fyrir búvörur, sem Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt í andstöðu við stjórnarskrá , verði endurgreitt þeim fyrirtækjum sem ekki hafa þegar nýtt innflutningsheimildir sínar. Þetta kemur fram í frétt á vef félagsins .

„Þótt Héraðsdómur teldi útboðsgjaldið ólöglegt, taldi hann ekki ástæðu til að endurgreiða fyrirtækjunum sem stefndu ríkinu, vegna þess að þau hefðu þegar velt gjaldinu út í verðlagið, á neytendur. Útboðsgjaldið er greitt fyrirfram einu sinni á ári. Því er ljóst að mörg fyrirtæki hafa ekki fullnýtt innflutningsheimildir sínar, sem þau hafa þegar greitt útboðsgjald fyrir,“ segir í fréttinni.

Þannig hafi fyrirtæki í upphafi árs greitt um 300 milljónir króna fyrir tollfrjálsan innflutningskvóta á vörum frá Evrópusambandinu, en aðeins lítill hluti þeirra hafi verið fluttur inn og seldur í verslunum.

Ráðuneytið veldur tjóni verði gjöldin ekki endurgreidd

Í bréfi FA til ráðuneytisins segir að ljóst sé að fjöldi innflytjenda hafi greitt fyrir innflutningsheimildir vegna ársins 2015 án þess að þær hafi verið nýttar. Með hliðsjón af niðurstöðu héraðsdóms sé ljóst að gjöldin beri að greiða til baka án frekari málalenginga.

„Allar tafir á endurgreiðslu munu óhjákvæmilega valda neytendum frekara fjárhagslegu tjóni með áframhaldandi ólögmætri háttsemi íslenzka ríkisins. Væri ráðuneytið, með hliðsjón af framangreindu, að valda því tjóni af ásetningi, verði gjöldin ekki endurgreidd hið fyrsta. Slíkt er bersýnilega ótækt,“ segir í bréfinu.

FA segir um að ræða umtalsverða hagsmuni fyrir neytendur og bendir á að útboðsgjaldið fyrir kíló af innfluttu kjúklingakjöti sé þannig 618 krónur, fyrir kíló af osti 445 krónur og fyrir kíló af nautakjöti 521 króna.