Félag atvinnurekenda hefur sent Ríkiskaupum erindi þar sem spurt er um útboð á flugfarmiðum fyrir ríkið og stofnanir þess, en samkvæmt erindi félagsins hefur útboðinu ítrekað verið frestað.

Rúmlega þrjú ár eru síðan Ríkiskaup sögðu upp rammasamningi um farmiðakaup ríkisins og boðuðu að efnt yrði til nýs útboðs, tilkynninguna Ríkiskaupa má sjá hér . Fjármálaráðuneytið gaf það út í mars á þessu ári að útboðið myndi fara fljótlega fram en þar sagði að „nýtt útboð fari fram á fyrri hluta þessa árs.“

Félag atvinnurekenda sendi fyrirspurn um málið eftir að júní var liðinn en þar kom fram að málið hefði frestast og gert væri ráð fyrir að „auglýsa útboð á haustmánuðum.“

Túristi.is greindi frá því í byrjun september að útboðið væri í vinnslu og að stefnt væri að því að úboðið færi fram seinna í september.

Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri FA segir á vef félagsins „Í ljósi þess að nú er fyrri hluti ársins liðinn, september liðinn, október senn á enda runninn og fyrsti vetrardagur að baki, leyfir FA sér að ítreka fyrirspurn sína um hvað líði þessu mikilvæga útboði.“

Ólafur segir einnig „Félagið vekur enn fremur athygli á því að þar sem ótvíræð skylda hvílir á ríkinu að bjóða út farmiðakaupin, sem staðfest er með úrskurði kærunefndar útboðsmála frá því í apríl síðastliðnum, hefur ríkt ólögmætt ástand í þessum málum allt frá hausti 2012, eða í meira en þrjú ár. Mikilvægt er að binda enda á það sem fyrst.“