Stefán Friðriksson hefur verið ráðinn yfirleikjahönnuður hjá Solid Clouds. Um er að ræða nýja stöðu en félagið mun á næsta ári gefa út nýjan leik, Frontiers, sem einkum er hannaður fyrir snjalltæki.

Stefán hefur stundað nám í framleiðslu og hönnun tölvuleikja fyrir snjalltæki við Aalto University Executive Education í Finnlandi. Hann hefur sextán ára reynslu af hönnun leikja- og tekjukerfa fyrir tölvuleiki. Stefán hefur síðustu átta ár starfað sem leikjahönnuður hjá finnska tölvuleikjafyrirtækinu Rovio sem er eitt stærsta og virtasta fyrirtæki í þessari atvinnugrein í Evrópu. Rovio hefur meðal annars gefið út Angry Birds-leikina en þar er um að ræða eina þekktustu og vinsælustu leikjasyrpu sögunnar.

Síðustu þrjú ár hefur Stefán starfað sem yfirhönnuður (e. Game lead) á Angry Birds Match-leiknum. Áður starfaði hann í átta ár sem leikjahönnuður hjá CCP þar sem hann tók þátt í hönnun og gerð fjöldamargra uppfærslna á EVE Online.

„Stefán hefur mikla reynslu af hönnun og markaðssetningu tölvuleikja fyrir snjalltæki en finnsk fyrirtæki hafa náð eindæma árangri á því sviði. Markaður fyrir slíka leiki hefur farið hratt vaxandi síðustu ár og bendir allt til þess að sá vöxtur haldi áfram,“ segir í tilkynningu Solid Clouds.

Hlutverk Stefáns hjá Solid Clouds er að stýra teymi sem hannar leikja- og tekjukerfi tölvuleikja fyrirtækisins. Í því felst að hanna leikjakerfi með þeim hætti að spilarar njóti leikja félagsins sem best og að tekjukerfi þeirra séu í samræmi við veltumarkmið Solid Clouds.

„Það er mikill fengur fyrir Solid Clouds að fá jafn reyndan og hæfan leikjahönnuð til starfa við félagið en innkoma hans mun styrkja félagið til að komast í fremstu röð leikjafyrirtækja,“ segir Stefán Gunnarsson, forstjóri Solid Clouds.