Þeir sem fljúga með vélum Icelandair en hungrar í hamborgara í háloftunum yfir ballarhafi geta nú slegið á hungurtilfinninguna og fengið sér smáborgara frá Hamborgarafabrikkunni. Flugfélagið og Hambogarafabrikkan undirrituðu fyrir skemmstu samstarfssamning þar sem málið var innsiglað. Fabrikkuborgararnir er nýjung sem Hamborgarafabrikkan og Icelandair hafa þróað saman.

Fabrikkusmáborgararnir eru minni um sig en hamborgarar alla jafna og bornir fram í ferköntuðu Fabrikkubrauði. Hægt er að velja um tvo smáborgara eða fjóra ásamt Fabrikkusósu og gosdrykk að eigin vali.

Í sameiginlegri tilkynningu frá Icelandair og Hamborgarafabrikkunni er haft eftir Rannveigu Eir Einarsdóttur, forstöðumanni flugþjónustudeildar Icelandair, að smáborgararnir séu skemmtileg nýjung, hluti af þeirri viðleitni að efla þjónustu fyrirtækisins og auka vöruframboð um borð.