Samfélagsmiðillinn Facebook hefur höfðað mál gegn Evrópusambandinu (ESB) vegna ásakana um brot á friðhelgi starfsmanna. Financial Times greinir frá .

Facebook heldur því fram að eftirlit ESB hefði óskað eftir of víðtækum gögnum fyrir tvær yfirstandandi rannsóknir sem varða samkeppnismál. Samfélagsmiðillinn hefur beðið Almenna dómstólinn í Lúxemborg að stíga inn í málið.

Rannsóknir ESB byggjast á hvernig Facebook aflar sér tekna í tengslum við gagnasöfnun og hvort að Marketplace starfsemi þess (ekki í boði á Íslandi), vettvangur fyrir auglýsingar á fasteignum, störfum og annað slíkt, hafi óréttlátt forskot á samkeppnisaðila á smáauglýsingamarkaðnum.

Frá því í mars hefur Facebook útvegað Framkvæmdaráði ESB 1,7 milljónir blaðsíðna af skjölum, sem fela meðal annars í sér tölvupóstsamskipti innan fyrirtækisins. ESB hefur einnig óskað eftir öllum skjölum sem innihalda lykilorð og frasa líkt og „stór spurning“, „ókeypis“, „ekki gott fyrir okkur“ og „lokun“ (e. shutdown).

Í áfrýjun Facebook heldur fyrirtækið því fram að þessi tilmæli væru of víðtæk og myndu ná til einkaupplýsinga starfsmanna.

Embættismenn ESB segjast vera að fylgja hefðbundnu verklagi á samkeppnisrannsóknum og að þeir hefðu engan áhuga á persónuupplýsingum. Framkvæmdaráðið neitaði að tjá sig um málið.