Facebook er að þróa smáforrit sem virkar eins og Snapchat. Á vefnum PC World er fullyrt að nýja forritið sé kallað Slingshot og gæti komið á markað í þessum mánuði. Hins vegar sé ekki fullvíst að varan fari á markað.

Aðspurðir út í málið segja talsmenn Facebook að þeir vilji ekki tjá sig um sögusagnir varðandi framtíðina.