Samfélagsmiðillinn Facebook hefur kynnt áform um nýja stefnumótaþjónustu fyrir notendur sína. Mark Zuckerberg, forstjóri Facebook, greindi frá þessu í ræðu sinni á hinni árlegu F8 ráðstefnu í dag. CNBC greinir frá .

„Þetta verður til að byggja raunveruleg sambönd til langs tíma – ekki eingöngu til að slá sér upp með einhverjum í eitt skipti,“ sagði Zuckerberg.

Notendur búa til stefnumótaprófíl og í kjölfarið mælir Facebook með öðrum notendum (sem ekki eru vinir manns á Facebook). Það grundvallast á stefnumótaóskum hvers og eins, sameiginlegum áhugamálum, viðburðum sem báðir notendur hafa sótt, sameiginlegum vinum á Facebook og fleiru. Facebook-vinir notandans munu ekki geta séð stefnumótaprófílinn.

Geri notendur hosur sínar grænar fyrir hverjum öðrum geta þeir sent einkaskilaboð sín á milli á sérstöku forriti sem verður óháð Facebook Messenger og WhatsApp.

Gengi bréfa í stefnumótafyrirtækinu Match Group, sem meðal annars á og rekur Tinder, féll um 20 prósentustig í kjölfar frétta af þessari nýjung hjá Facebook. Móðurfélag Match, IAC, féll um 10 prósent í verði.

Í árslok 2017 voru virkir notendur á Facebook 2,2 milljarðar í hverjum mánuði um allan heim.