Forsvarsmenn Facebook lögðu í dag fram mat sitt á virði samskiptasíðunnar.  Þetta kemur fram á vef Reuters.

Þeir byggja mat sitt á því gengi sem nýir hlutir hafa verið seldir í félaginu.  Alls hefur 1,5 milljarði dala verið safnað í nýtt hlutafé.

Að mati Facebook er samskiptasíðan 50 milljarða dala virði, um 5.800 milljarða króna.  Félagið sagði að það myndi tilkynna uppgjör sín opinberlega ekki síðar en 30. apríl 2012.