Ted Jorgensen, 69 ára gamall hjólreiðaverslunareigandi í Arizona, er líffræðilegur faðir Jeff Bezos, forstjóra Amazon. Jorgensen vissi ekki af syni sínum fyrr en seint á síðasta ári. það var þá sem höfundur nýrrar bókar um Bezos sagði honum frá því.

„Ég vissi ekki hvar hann var, hvort hann væri í góðu starfi eða ekki, eða hvort hann væri jafnvel á lífi,“ sagði Jorgensen við Brad Stone, blaðamann Businessweek og höfund bókarinnar Everything Store: Jeff Bezos and the Age of Amazon. Bókin kemur út síðar í mánuðinum.

Í útdrætti úr bókinni sem kom út í gær segir að Jorgensen hafi orðið hryggur og jafnvel tortrygginn þegar hann sá myndir af syni sínum.

„Ég var hvorki góður faðir né góður eiginmaður,“ sagði Jorgensen.