Barack Obama forseti Bandaríkjanna opinberaði í dag fæðingarvottorð sitt. Obama hélt fund með fréttamönnum þar sem hann útskýrði hvers vegna hann opinberaði vottorðið nú.
Andstæðingar Obama hafa allt frá forsetakosningunum 2008 véfengt að forsetinn hafi fæðst á bandarískri grundu sem er forsenda þess að nokkur einstaklingur geti orðið forseti Bandaríkjanna. Obama telur að málið trufli þau mál sem skipta mestu í stjórnmálum vestanhafs þessa stundina.
Því ákváð Obama að óska eftir því við yfirvöld á Hawaii að fá afrit af fæðingavottorðinu en Obama fæddist á Kapiolani spítalanum á Honolulu 4. ágúst 1961.
Fæðingarvottorðið