Breska bankasamsteypan HSBC tilkynnti í morgun að starfsmönnum verði fækkað um 30 þúsund fram til 2013 eða um 10% af heildarstarfsmannafjölda bankans.

Er þetta mun meiri fjöldi en sérfræðingar höfðu gert ráð fyrir. Fyrir helgi var talið að fækkunin yrði um 10 þúsund.

Þegar hefur starfsmönnum fækkað um 5 þúsund á þessu ári.