Mikil tækifæri felast í færri og stærri sveitarfélögum að sögn Viðskiptaráðs Íslands . Kosið verður um sameiningu í tíu sveitarfélögum á næstu vikum og og hefur ráðið í greiningu reiknað út að ef allar tillögurnar verða samþykktar gæti kjörnum fulltrúum fækkað um 27. Hagræðing í launakostnaði sveitarstjóra og sveitarstjórna nemi við það um 200 milljónum króna á næsta kjörtímabili.

Viðskiptaráð setu fækkunina í samhengi með því að geta þess að fulltrúar í borgarstjórn Reykjavíkur eru 23 og samsvarar fækkun fulltrúa á landsbyggðinni því allri borgarstjórn og vel það. Þá segir ráðið ýmsa kosti fólgna í því að færa þjónustu nær íbúum, en fámenni í sveitarfélögum dragi almennt úr möguleikum til að færa verkefni frá ríki til sveitarfélaga.

Kosið verður í sex sveitarfélögum á morgun og fjórum viku síðar, 26. mars n.k. Sameiningartillögurnar eru samtals fimm. Sveitarfélögin sem um ræðir eru Húnavatnshreppur og Blönduósbær, Sveitarfélagið Skagafjörður og Akrahreppur, Snæfellsbær og Eyja- og Miklaholtshreppur, Svalbarðshreppur og Langanesbyggð og Helgafellssveit og Stykkishólmsbær.

Fyrri sameiningarátök hafi skilað árangri

Viðskiptaráð bendir jafnframt á að sameiningarátak stjórnvalda og Sambands íslenskra sveitarfélaga árið 2005 hafi skilað fjölmennari og öflugri sveitarfélögum. Síðan þá hafi hægst verulega á sameiningum og engar sameiningar hafi átt sér stað árin 2012–2017. Sameiningarátak árin 1992–1994 og 2004–2006, auk tilfærslu reksturs grunnskóla til sveitarfélaga árið 1996, hafi haft þau áhrif að sveitarfélögum fækkaði úr 201 í 79.

„Þingsályktun um stefnumótandi áætlun um málefni sveitarfélaga sem samþykkt var árið 2020, auk breytinga á sveitarstjórnarlögum, fela í sér aukinn stuðning við sameiningu sveitarfélaga í formi sameiningarframlaga og ljóst er að fjárhagslegir hvatar eru að skila tilsettum árangri,“ segir í greiningu Viðskiptaráðs og minnst er á að sérstök framlög Jöfnunarsjóðs vegna sameiningar séu greidd út á sjö árum og feli í sér þrjár tegundir framlaga.

  • Fast framlag 100 milljónir króna vegna endurskipulagningar og innleiðingarkostnaðar við stjórnsýslubreytingar.
  • Skuldajöfnunarframlag að hámarki 400 milljónir króna til að jafna skuldir milli sveitarfélaga.
  • Byggðaframlag að hámarki 200 milljónir króna sem tekur mið af íbúaþróun til síðustu fimm ára.

Tillögur um sameiningu hafi ekki verið fleiri frá árinu 2006 og gæti því verið miklar breytingar séu framundan á sveitarstjórnarstiginu.

„Jöfnunarsjóður sveitarfélaga greiðir framlög vegna sameiningar og gætu þau numið alls þremur milljörðum króna ef þær yrðu allar samþykktar. Sjóðurinn hefur skuldbundið sig til að greiða allt að fimmtán milljarða á næstu fimmtán árum í slík verkefni. Hann greiðir nú þegar framlög vegna sameiningar Suðurnesjabæjar og Múlaþings en framlög vegna sameiningar Skútustaðarhrepps og Þingeyjarsveitar verða greidd eftir sveitarstjórnarkosningar 2022. Því gæti reynt á hámarksgreiðslu um milljarð á ári eftir því hvernig úthlutunum nýrra verkefna verður háttað,“ segir jafnframt í greiningu Viðskiptaráðs, sem telur fjárhagslegan stuðning við sameiningu sveitarfélaga í formi sameiningarframlaga vera skref í rétta átt en núverandi fyrirkomulag Jöfnunarsjóðsins dragi úr hvötum til sameiningar og hagræðingar í rekstri.

„Sameiningarframlögum skal ekki rugla við árleg framlög Jöfnunarsjóðs til sveitarfélaga og  þau eru til jöfnunar á mismunandi tekjumöguleikum og útgjaldaþörf.  Dæmi eru um að þessi árlegu framlög nemi um eða yfir 50% af rekstrartekjum þeirra.“