Þekkta vörumerkið Abercrombie hefur boðið raunveruleikaþáttastjörnu myndarlega upphæð fyrir að klæðast ekki fötum frá fyrirtækinu. Fyrirtækið telur að notkun MTV raunveruleikaþáttastjörnunnar, Mike "the situation" Sorrentino geti skaðað ímynd Abercrombie. Lausnin á því var talin vera að greiða Mike fyrir að klæðast ekki fötum frá Abercrombie og óska eftir því við framleiðendur á MTV að önnur fatategund verði valin. Þetta kemur fram í Forbes.

Abercromie hefur verið að skila stöðugum tekjum á erfiðum tíma og hefur náð að festa sig vel í sessi.