Gengi hlutabréfa færeyska flugfélagsins Atlantic Airways hækkaði um 8,17% í Kauphöllinni í dag. Þetta var langmesta hækkun dagsins og átti það hlut í að lyfta Úrvalsvísitölunni upp um 0,98%.

Dagurinn einkenndist af hækkun á íslenskum hlutabréfamarkaði. Gengi hlutabréfa Össurar hækkaði um 1,92% og gengi bréfa Icelandair Group hækkaði um 1,07%. Á sama tíma lækkaði gengi hlutabréfa Haga um 1,32%.

Úrvalsvísitalan hækkaði sem fyrr segir um 0,98% og endaði hún í 1.080 stigum. Tæpar þrjár vikur eru síðan hún náðist slíkum hæðum.