Ný greining sem Hagfræðistofnun Háskóla Íslands  hefur gert á íslenskum vinnumarkaði var kynnt Ásmundi Einari Daðasyni, félags- og jafnréttismálaráðherra á fundi í gær, samhliða afhendingu sérfræðingahóps á tillögum til ráðherra um það hvernig haga megi reglubundnu mati á færni-, menntunar-, og mannaflaþörf á vinnumarkaði til framtíðar.

Hér á landi hefur aldrei áður verið gerð greining á vinnumarkaðinum eins og sú sem Hagfræðistofnun Háskólans hefur nú gert en greiningin veitir margvíslegar upplýsingar um menntun vinnuaflsins, meðalaldur innan ólíkra starfsstétta, aldursþróunina á liðnum árum, kynjahlutföll og marga aðra þætti sem snerta samspil starfa og hæfni vinnuaflsins.

Aðilar vinnumarkaðarins og stjórnvöld hafa undanfarin ár verið sammála um mikilvægi þess að færni- menntunar- og mannaflaþörf á íslenskum vinnumarkaði sé betur greind. Vegna skorts á upplýsingum hvað þetta varðar hafa Íslendingar verið eftirbátar nágrannaþjóða þegar kemur að heildarstefnumótun í þessum efnum.

Fulltrúar frá Vinnumálastofnun, Alþýðusambandi Íslands, Hagstofu Íslands og Samtökum Atvinnulífsins sátu í sérfræðingahópnum sem í vinnu sinni skoðaði ítarlega færnispár annarra þjóða og þá sérstaklega hvernig Finnar, Svíar og Írar standa að þessum málum en þeir eru taldir meðal fremstu þjóða á sviði vinnumarkaðsgreininga og gerð færni- og mannaflaspáa eins og hér um ræðir.

Í skýrslu sérfræðingahópsins segir að ólíkt flestum vestrænum ríkjum hafi Íslendingar ekki lagt kerfisbundið mat á færni-, menntunar- eða mannaflaþörf á vinnumarkaði til lengri tíma. Vaxandi skilningur sé þó á mikilvægi þess að hér sé ekki aðeins menntað vinnuafl, heldur að menntunin henti atvinnulífinu og þeim störfum sem eru á vinnumarkaði. Lykilatriði í því er að fjárfest sé í réttri menntun og færni, segja sérfræðingarnir. Í skýrslu þeirra kemur m.a. fram að hlutfall þeirra sem ekki hafa lokið formlegri menntun hér á landi sé enn yfir meðaltali OECD. Um fjórðungur fólks á aldrinum 25 – 34 ára hafi ekki lokið formlegri menntun á framhaldsskólastigi og þar séu karlar í meiri hluta. Á sama tíma hafi háskólamenntuðum fjölgað verulega:

„Frá hruni hefur sú þróun orðið skýrari að vaxandi misræmi er milli menntunar og starfa á vinnumarkaði. Ein birtingarmynd þessa misræmis er fjölgun háskólamenntaðra á vinnumarkaði, á sama tíma og störfum fyrir ýmsa hópa háskólamenntaðra hefur ekki fjölgað í sama mæli. Misræmið leiðir til þess að einstaklingar ráða sig í störf sem þeir eru annað hvort of færir í eða störf sem krefjast færni sem þá skortir. Slíkt misræmi á vinnumarkaði felur í sér efnahagslegan kostnað, t.d. lægri framleiðni og kostnað við ónýtta færniþróun, en misræmið dregur einnig úr starfsánægju, hefur neikvæð áhrif á tekjur og hefur neikvæð áhrif á atvinnuþátttöku og atvinnuleysi“ segir meðal annars í skýrslu sérfræðingahópsins.