Sala á nýjum bílum dróst saman um 1% á milli ára á fyrstu sex mánuðum ársins. Nýskráningar voru 4.804 og er það 50 bílum færra en á sama tíma í fyrra, samkvæmt upplýsingum frá Bílgreinasambandinu.

Þar af voru 1.468 bílar nýskráðir í júnímánuði. Það er 48 bílum færra en voru nýskráðir í júní í fyrra og nemur samdrátturinn 3,2% á milli ára.