Færri lögaðilar greiða opinber gjöld nú en áður. Gjaldið er engu að síður hærra.

Ríkisskattstjóri hefur lokið álagningu opinberra gjalda á lögaðila. Í fyrra sættu 12.461 lögaðilar áætlun. Nú eru þeir 11.686 talsins.

Álagningin nemur í ár 104,6 milljörðum króna. Hún var 78,4 milljarðar króna í fyrra.

Af einstökum liðum hækkar tryggingagjald mest á milli ára, eða 41,4%.

Ríkisskattstjóri